Hæhæ.. ég er sko komin aftur for
gúdd! Ohh það er
búið að vera svo gaman hjá mér.. lokasýningin var á laugardaginn
og svo var svaka djamm eftir það! Ji.. það var flæðandi Mojito
og Fishermans Friend.. úff mæli ekki með því saman.. ekki mjög
gott svona eftir á! Ég gerði heiðarlega tilraun til að borða
daginn eftir á Vegamótum með Daníel, Guðný og Ursulu en það
tókst ekki sem skildi.. gerði mun meira af því að horfa á þau
borða og hneykslast á því að þau gætu það hehe.. við reyndar
vorum búin að borða um svona 7 leytið hehe.. Ursula eldaði og ég
var hjálparkokkur
(eiginlega meira svona hrærari hehe) En
það er voða skrítið að vera ekki að hitta þetta fólk á hverjum
degi lengur.. Það er sérstaklega furðulegt því að ég er ennþá
niðrí óperu á hverjum degi.. bara með öðru fólki.. Ég kynntist
fullt af yndislegu fólki og er strax farin að sakna þeirra! en
ég get nú auðveldlega hitt flest þeirra, það er erfiðara með þau
sem eru ekki á landinu..
eníveis ætla ekki að vera grenjandi
hérna.. Ef þið viljið koma að sjá Óperuna okkar í Tónó sem verður
sýnd í íslensku óperunni þá kostar miðinn ekki nema skitnar 1.000
krónur og þið getið bara nálgast hann hjá mér með því að senda mér
tölvupóst (tinna_84@yahoo.com) eða bara hringja í mig í síma
8685099...
Ég var að gúgla mig áðan.. (á
google.is semsagt) og það var bara fyndið.. fann alveg heilar 7
síður hehe.. ok reyndar ekki heilar.. það var einhver sigríður
tinna og svo maría tinna sem voru að taka upp pláss þarna en meðal
efnis voru flass sögur, tilkynning um hvatningu forseta (já takk ég
fékk sko svoleiðis), auglýsing fyrir tónleika sem ég er að fara að
syngja á fyrir austan í maí, skelfileg mynd af mér með Dagnýju Jóns
á heimasíðunni hennar Siv Friðleifs, nokkrir linkar á þessa síðu,
önnur skelfileg mynd af mér af heimasíðu Helga Garðars þar sem ég
var í 10 bekk en skil vel að fólk hafi haldið að ég væri mun yngri
og með stutt hár í fyrsta og eina skiptið á minni ævi (reyndar var
það aðeins styttra en var bara búið að vaxa aðeins), umfjöllun um
Don Giovanni þegar ég var að syngja í Óperustúdíói Austurlands og
meira að segja einhver linkur inn á hópverkefni sem ég gerði í ME..
ofur spennandi... mæli með að fólk googli sig.. það kemst að ýmsu..
ég hef reyndar einu sinni gert það áður með sjálfa mig og það var
eftir að ég hitti einn dreng á djamminu sem ég hafði bara hitt einu
sinni áður og hann sagðist hafa googlað mig og séð einhverjar
myndir af mér og svona.. fannst það hálf undarlegt
svona!
En já ætli ég fari ekki að láta þetta
gott heita, ég lofa að vera aðeins duglegri að skrifa.. ekki bara
þaga og koma svo með svona rosa skrif eins og núna.. hehe eins gott
að einhver nenni að lesa þetta 
ú já gleymdi næstum, var að setja inn
myndir sem voru teknar baksviðs í óperunni og eru ansi skrautlegar
hehe.. tjekk it át